Sólskinsbarn
Áhugavert
01.10.2008 00:25:43 / ingunn

Fjársjóðr hjartans - orð fyrir daginn í dag.

,,Safnið yður ekki fjársjóðum á jörðu, þar sem mölur og ryð eyðir og þjófar brjótast inn og stela. Safnið yður heldur fjársjóðum á himni, þar sem hvorki eyðir mölur né ryð og þjófar brjótast ekki inn og stela. Því hvar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hjarta þitt vera" - sagði Jesús og í dag eiga orð hans kannski sérstaklega vel við (Sjá Mattheus 6:19-21).

Ef krónan er það sem ég byggi líf mitt og hamingju á, ef auðæfi og eignir er það sem ég ætla að setja traust mitt á, er ég að byggja hús mitt á sandi - en ef ég geri eins og hyggni maðurinn í laginu sem byggði hús sitt á bjargi þá þegar steypiregnið kemur (sem hefur reyndar bókstaflega hrunið yfir nú í september) þá mun húsið á bjargi standa fast (sjá Mattheus 7:24-27).
Guðs grundvöllur er alltaf sá sami - Guð breytist ekki þó að aðstæður okkar breytist, það er alltaf hægt að treysta á hann, og hans kærleikur, eins og ég hef held ég áður sagt á þessu bloggi, fellur aldrei úr gildi og gengisfellur aldrei! Hann elskar okkur eins mikið í dag og í gær og á morgun og hann er þess virði að við reiðum okkur á hann og þökkum honum fyrir það sem við fáum að njóta í lífinu. Ef við hrokumst upp og höldum að við þurfum ekkert á Guði að halda og viljum bara lifa lífinu á eigin forsendum og gera það sem okkur sýnist - þá er kannski gott að hafa í huga sígilda málsháttinn: Dramb er falli næst. En munum að Guð bíður alltaf með opinn faðm sinn - og við getum hlaupið í hann.

Orðskviðirnir 15:15-17:
Betra er lítið í ótta Drottins en mikill fjársjóður með áhyggjum. Betri er einn skammtur kálmetis með kærleika en alinn uxi með hatri.

Ég mæli með lesningu Orðskviðanna sem er að finna í Biblíunni.
T.d. Orðskv. 11:28.

Og hér að lokum er eitt unaðslegt vers - sama hvernig ytri aðstæður eru, þá ætla ég samt að lofa Guð!!

Habbak 3:17-18 
Þótt fíkjutréð blómgist ekki og víntrén beri engan ávöxt, þótt gróði olíutrésins bregðist og akurlöndin gefi enga fæðu, þótt sauðfé hverfi úr réttinni og engin naut verði eftir í nautahúsunum, þá skal ég þó gleðjast í Drottni, fagna yfir Guði hjálpræðis míns.

Góða nótt og sæt kveðja
- Ingunn Huld

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.09.2008 00:27:15 / ingunn

minn tebolli

Rigning inn að beini
varð mér ekki að meini
næstum drekkti síma
en tókst að bjarga tíma
úrið varð blautt og kalið
og þess vegna alveg galið
að halda áfram að ganga
úti kvöldstund langa.

Nú sit ég með tóman bolla
og er bara eitthvað að drolla
best að hætta rími
því dýrmætur er þessi tími.
ihs

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.08.2008 14:13:48 / ingunn

A-fríka-út

Minn tími er kominn
sagði bloggið
en var sagt upp
því mittsvæði og fésbók og alls kyns netsamfélög voru komin í þess stað
það hélt samt áfram að vinna vinnu sína, af og til, bara til að vera til
og hér er það nú í gangi.

Á morgun fer ég til Afríku með hópi úr kirkjunni, reyndar fljúgum við til Spánar... en já. Hlakka mjög mikið til og er þakklát fyrir súperheitu dagana undanfarna viku því þeir hjálpa manni sjálfsagt að venjast óvenjulegum hita.

Ertu að grínast hvað þetta er búið að vera skemmtilegt sumar!!?

Kær kveðja hér heiman frá mér
- Ingunn Huld


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.07.2008 23:50:02 / ingunn

Lundúnir

svo margt svo margt
svo margt í þessu
ákveðið á fimmtudag
út á laugardag
flugvél lest labba spyrja finna spjalla gleðjast
hlusta
læra skrifa hugsa hlusta hlusta
redda spyrja leita finna borga
labba labba labba borða
syngja lofa og syngja
þreytast heimast borða sjá labba hátta sofna
sofa sofa sofa
sofa
og vakna
bralla

Fór út með góðum vinum á laugardag á lofgjörðardag í Lundúnum,
þar var yndislegt :d
það sem við gerðum fleira var t.d.
Messa í Holy Trinity Brompton
lautarferð eða pikknikk í Hyde Park
meira labb, lestarferðir
versl
skoð
heimsækja Hönnu og Alex
syngja fyrir gangandi vegfarendur
trúlofast
gleyma að spyrja hvað biðill án bónorðs hét
hitta íkorna
hitta lögreglumenn með riffla
hitta verði sem voru að detta útaf og við vorkenndum
hitta kall sem var fyndnari en bíó
versla falleg föt
villast í strætó
syngja í lestinni
reyna að fá alvarlegt fólk til að brosa
ákveða að fara aftur til London til að fara á leiksýningu...
kannski bara Sound of music. - hvernig væri það!!!? 

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.06.2008 00:16:58 / ingunn

Himinlifandi!

Himinn
heiður, blár og bjartur
eða grár og þungur
maríutjásur að morgni
og sólsetur sem hneygir sig í hafið
ofan af bleikum skýjahnoðrum

skúraský um miðdegi með regnboga í eftirmat

Himinn
eitt lítið orð sem lætur lítið yfir sér
en nær yfir svo ótal margt.

Himinn
og hann er bara handaverk himnasmiðsins.

ihs

Himinninn er listaverk sem lætur mann fá hálsríg.


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.06.2008 23:58:01 / ingunn

Með sól í hjarta

Hann breiðir teppið yfir tún og engi, ryksugar það með rokinu og bróderar á það baldursbrár og fífla. Tjaldar svo himninum og tyllir hælunum laust í mjúka jörðina svo sólin fer frjáls ferða sinna daga og nætur. Svo úðar hann vellyktandi yfir fjöll og dali og skóga og einmitt í þeim, trekkir hann upp fuglasönginn sem ég vakna við svo ljúft og sofna við svo friðsælan sumarið á enda. Með tánum tel ég dagana sem eftir eru af sumri og baða mig í þeim og nýt.
ihs


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 12:40:50 / ingunn

Svör óskast:

Skemmtilegasta sem þú gerðir í morgun?

Júróvisjón eða Evróvisjón?

Fyrsta orðið sem þér dettur í hug þegar þú heyrir orðin:
sumar:
bensín:
spraka:
kartöflumjöl:

Áttu snúsnúband?

Hefurðu farið hringinn í kringum Ísland?

Ef þú ættir þrjár vikur til að gera ekki neitt í hvað myndirðu verja þeim?

Hefurðu smakkað söl?

Hvað stóð upp úr í síðustu viku?

Hvað er málið?

» 11 hafa sagt sína skoðun

11.05.2008 23:50:22 / ingunn

Hann elskar okkur :)


     
Með ljúfum tónum
vögguvísu vorsins
vil ég fara út
í bjarta kvöldnóttina
í náttbuxum
og faðma allan heiminn. 
ihs
                                               
                                                                             Ef orð væru blóm
                                                                             myndi ég tína þau 
                                                                             fegurstu og færa þér
                                                                             En blómin mín myndu fölna
                                                                             og ég finn ekki
                                                                             blóm sem birta geta fegurð
                                                                             jafnt við kærleika þinn. 
                                                                             ihs


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.05.2008 18:20:20 / ingunn

Frá Granda að Stakkarhlíð

Trén við Hringbrautina

virtust feimin

svona næstum því nakin

aðeins á nærfatalaufklæðunum.

ihs
 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.05.2008 22:01:36 / ingunn

Kraftaverk!

Ég er búin að vera inni í næstum allan dag að lærast... og þegar dagurinn var ekki einu sinni hálfnaður þá fór ég út í vissum erindagjörðum og haldiði að það hafi ekki allt verið orðið miklu miklu grænna, trén og grösin og það sem meira er: það hafði rignt ormum!
sá einn skríða á gangstéttinni, annar virtist látinn - hefur sjálfsagt ekki þolað fallið.

Vorið er árlegt kraftaverk!
- þegar fuglarnir rata aftur til Íslands
- þegar allt verður grænt
- þegar trén sem virtust lífvana laufgast
- þegar loftið fyllist asparangan og fuglasöngli kvölds og morgna
og alltaf verður vorið á þessum árstíma...
- ég ætti að taka það mér til fyrirmyndar og læra að koma inn á kjúi, aka: mæta á réttum tíma...

sonnetta að tilefninu:

Veröld vorsins

Bjarta veröld vorsins rís á fætur
veltir sér úr fleti, eftir langa
hvíld sem varði nokkuð margar nætur,
nuddar úr sér stírur, strýkur vanga. 
 
Stendur upp og stekkur út í daginn
stálpuð, hress og ungleg nú sem áður.
Vetur gamli hokinn, hress en laginn
úr huga okkar nú um stund er máður.
 
Allt til sumars full af þrótti þreyjum
þess er ekki allt of langt að bíða
tilhlökkunin sem í barnsins barmi
 
Senn mun vakna sægur af flugugreyjum
síðan hratt mun draumaveröld líða
en fyrir sumar lifnar vorsins varmi.
ihs

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.05.2008 01:24:12 / ingunn

lærð?

fyrir er ekki sögn, en samt er til fyrirsögn

-svona gerist þegar maður hefur lært mikið og aðalfæðuflokkurinn sem maður hefur kosið í heilan dag er sá sætasti...

Það hefur gerst ekki einu sinni og ekki bara tvisvar í dag að ég hlæ sjálfsprottnum (spontaneous) hlátri af engu öðru en steiktum hugsunum... próflestur getur sem sagt látið mann fá svefngalsa þó ekki sé kvöld, svo ég hef komist að því að sennilega er eitthvað til sem heitir prófgalsi. En það er sennilega bara gott að eiga gleði í próflestrinum. 

Meðan ég sat inni og lærði við músíkina í rigningunni... hehe  (sorglegt, ég veit) þá hafði minn heittelskaði sig til. Fór í sturtu og nýjan grænan frakka og setti á sig vellyktandi svo þegar ég fór út eftir daginn ilmaði allt svo yndislega.

,,ætli það sé eitthvað vítamín í rigningunni... eða kannski litarefni... fyrst allt verður svo lifandi grænt og fallegt þegar hún hefur hellt sér yfir það?"


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.05.2008 00:38:31 / ingunn

Ljúft laugardagskvöld

Þar sem ég sat og lærði leit ég út um gluggann og sá svo fagurt sólarlag að ég varð að fara út að hlusta á það... ég hljóp niður í skó og peysu, vettlinga og eyrnaskjól og ÚT...
vá hvað himinninn var fagur - hann er það endalaust alltaf!
Ég gekk yfir trjátrumb sem liggur yfir læknum og þrátt fyrir enga jafnvægisstöng í höndum mér komst ég klakklaust yfir. Ég hljóp yfir þurrt og gamalt grasið og ætlaði að faðma að mér sólarlagið, langaði helst til að henda mér í jörðina og faðma hana af kærleika til skaparans. Hljóp og gladdist í áttina að sólarlaginu sem var að feida út í þögult hafið. Af ást til hans fékk ég orkubúst og lét það ekki stöðva mig að leiðin heim yrði löng eða skórnir væru ekki þeir þægilegustu. Gekk áfram og gladdist, undir brú og milli trjáa, á göngustíg þar sem leiðin lá að útsýni yfir hafið.
- Ég fékk VIP miða á sólarlagið - tónleika skaparans- á þessu ljúfa laugardagskvöldi - og það með engum fyrirvara.
Þegar nálgaðist áfangastað, ef hann var einhver, hægði ég á mér og eftir að hafa virt fyrir mér sólarlagið, himininn og hafið sá ég að Esjan hafði líka bráðnað fyrir skapara sínum, næstum enginn snjór á henni eftir.

Nú er tónleikunum lokið og ég býð spennt eftir sunnudagssjóvinu.

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.04.2008 00:27:14 / ingunn

Halló .....

halló, halló, hallóóóóóó.....

Gleðilegt sumar!
...legt sumar, sumar, smar...

Það er soldið einmanalegt á þessu bloggi
bloggi, bloggi, bloggi...

Kannski ég ætti að tjá mig í gormuðu dagbókina eingöngu
eingöngu, göngu, öngu...

því það bergmálar ekki eins í henni
henni, henni, henniii...

Kveðja,
            Eingunn
                             gunn, uuuuunn....





» 2 hafa sagt sína skoðun

23.04.2008 14:38:12 / ingunn

Nemönd í verkefnum

Sitjandi
lærandi
hugsandi
klippandi
hlustandi
hlakkandi
lærandi
horfandi
hugsandi
lærandi
á Íslandi.

Sá ég litlar vorendur
standa útá götu
alveg satt
þurfti að bremsa
þær voru nú meiri kjánarnir
og ég hló
ein í bílnum
að litlum fjaðurkrílum.
:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.04.2008 01:01:38 / ingunn

Ljúfdegi

Í dag
var góður dagur
rosalega góður dagur
rosalega frábær og fínn dagur
og ég fékk mér ís í Perlunni
og labbaði einn hring
og horfði á útsýnið
og ímyndaði mér að ég væri í fjarlægu landi
sem ég kannski kem til einhvern tímann
að skoða útsýnið
kannski með ís líka.

Svona skal mann gera þegar maður þarf að læra mikið
- gera eitthvað skemmtilegt -
það tekur ekki nema nokkrar mínútur að borða einn ís
en þetta skilar sér allt í afkastamikilli verkefnavinnu
þegar í skólann er komið :)

Næst verður það: Að skoða verkin hans Kjarval... eða segir maður Kjarvals?

Það er víst frítt inn á Listasöfnin... eða svo hef ég heyrt... og það tekur ekki nema nokkrar mínútur að skoða eins og þrjár myndir...
en það skilar sér allt í innblæstri og afkastamikilli verkefnavinnu
þegar í skólann er komið :)

Hefur engum dottið í hug að vera í próflestri í heitu pottunum í Laugardalslauginni að vori til? ... ég kasta þeirri hugmynd hér út í loftið... það væri hægt að útfæra það á snilldarhátt: Allir þeir sem læra fyrir íslenskuprófið, það er skjávarpi yfir steinapottinum sem birtir allar helstu glósur og umræðuhópar á eftir... Allir þeir sem hyggjast læra fyrir stærðfræðiprófið, til að gera próflesturinn skemmtilegri ómar fróðleikur í rennibrautinni og þegar þú kemur niður þarftu bara að leysa nokkur dæmi og ferð svo næstu ferð. Allir þeir sem læra fyrir enskupróf, þið getið rabbað við ferðamennina í vaðlauginni og allir þeir sem læra fyrir mannkynssögupróf, efninu er skipt á pottana eftir hitastigi, 39 gráðu potturinn er frá fornöld til ársins eitthvað, í 40 gráðu pottinum frá eitthvað til sautjánhundruð og súrkál og í 41 gráðu pottinum frá súrkál til dagsins í dag...

- viss um að það skilar sér allt í afkastamiklum og glæsilegum prófúrlausnum
þegar í prófin er komið.

Góða nótt
- Svefngalsunn

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10